Aðalfundur SAAS 2022

Samstarfsnefnd AA-deilda á Stór-Reykjavíkursvæðinu
Heldur sinn aðalfund þriðjudaginn 3. maí 2022 kl. 18.30
í Gula húsinu Tjarnargötu 20, 101 Reykjavík

Dagskrá aðalfundar:

  1. Skýrslur SAAS um starfsemi liðins árs:
    1. Skýrsla oddamanns
    2. Yfirlit símaþjónustunnar – Neyðarsíminn
    3. Yfirlit frá fulltrúum stofnana
  2. Reikningar SAAS lagðir fram til samþykktar – skýrsla gjaldkera
  3. Kosið í stöður fulltrúa innan SAAS úr tilnefningum deilda (farið eftir hefðum SAAS)
    ATH! Tilnefndir fulltrúar deilda verða að sitja aðalfundinn til að fá kosningu
  4. Umræður og kosning um tillögur vegna breytinga á starfsvenjum SAAS
  5. Önnur mál

Æskilegt er að AA deildir tilnefni a.m.k. einn tengilið (áheyrnarfulltrúa) til að sitja fundinn.

Fulltrúatilnefningar deilda til starfa innan SAAS verða lagðar fram til staðfestingar á aðalfundi SAAS og kosið verður úr þeim í lausar stöður SAAS fulltrúa. Til að geta starfað sem fulltrúi í SAAS skal miða við að tilnefndir aðilar hafi minnst 2ja ára samfelldan edrútíma að baki, séu virkir AA-félagar og séu reiðubúnir að starfa af fullum krafti í 3 ár.
ATH! Sá sem er tilnefndur þarf að sitja aðalfund til að hljóta kosningu.

Fulltrúatilnefningar frá deildum þurfa að berast til SAAS í síðasta lagi 19. apríl 2022
rafrænt á netfangið saas.rvk@gmail.com með neðangreindum upplýsingum:

  • Heiti deildar, ásamt fundardegi og fundartíma
  • Nafn umsækjanda, ásamt edrúdegi, síma og netfangi

Frekari upplýsingar um starfsemi SAAS er að finna hér á baksíðunni.
Einnig minnum við á heimasíðu SAAS á saas.is fyrir ítarupplýsingar um starfsemina.
Beinum fyrirspurnum er svarað í gegnum netfangið saas.rvk@gmail.com
Við vekjum sérstaka athygli á yfirstandandi söfnun og milligöngu AA lesefnis fyrir 12 spora vinnu á sjúkrahúsum og stofnunum, sjá nánari upplýsingar á heimasíðu SAAS.

Kveðja stjórn SAAS 2021/2022